Takmark Heimsgöngunnar er að fordæma hið stórhættulega ástand í heiminum, sem færir okkur nær og nær kjarnorkustríði og skapa í staðinn kringumstæður sem leitt geta til friðar og tilvistar án ofbeldis.
Gangan sjálf hefst á fæðingardegi Gandhis, 2. október 2009 á Nýja Sjálandi, stendur yfir í 3 mánuði og endar við rætur Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameriku 2. jan 2010.

Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

Nokkrir stuðnings aðilar.

Nýlega tók Michelle Bachelet forseti Chile á móti Rafael De La Rubia talsmanni fyrir Heim án stríðs í forsetahöllinni í Santiago. Með Rafael í för voru m.a. Thomas Hirsch talsmaður ný húmanismans í Suður Ameríku og Pia Figueroa fyrrverandi ráðherra húmanista í Chile.

 

 

Fjölþjóðlega ganga fyrir friði og einingu þann 16. maí n.k. er einn þeirra mörgu viðburða sem tengjast Heimsgöngunni á Íslandi. Mætum öll í þessa göngu (sem hefst við Hallgrímskirkju) hvort sem við erum fædd á Íslandi eða annarsstaðar í heiminum. Við eigum öll sama rétt og enginn er ólöglegur!
 

Cristina Kirchner forseti Argentínu hefur lýst yfir stuðningi við framtak samtakanna Heimur án stríðs og skorar á fólk að vinna að því að skapa heim án ofbeldis þar sem merki réttlætis, frelsis og samræðu er haldið á lofti.

 

Frá fréttastofunni Pressenza í Santiago Chile 19.04.09

Samtökin Heimur án stríðs ásamt Tomas Hirsch samhæfi Suður-Ameríku halda áfram að safna stuðningi við Heimsgönguna í þessari táknrænu aðgerð í miðborg Santiago í Chile. Í þetta skipti völdu ungir húmanistar staðinn    sem er mikilvæg miðstöð á Paseo Ahumada þar sem allar leiðir liggja um. Aðgerðin var kraftmikil og unga fólkið lagði áherslu á frið og virka baráttu án ofbeldis klætt í samfestinga og leitaðist við að koma á samræðum við vegfarendur.Húmanistahreyfingin stefnir á að safna einni milljón stuðningsmanna.

Thomas Hirsch og ungir húmanistar í Santiago

Gamlar Húmanistakempur tóku gesti Kolaportsins tali í dag sunnudag og buðu þeim að styðja Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.

Fjölmargir lýstu yfir stuðningi og voru sammála því:

 1. að kjarnavopnum verði útrýmt um heim allan

2. að innrásarherir verði umsvifalaust kvaddir heim frá hernumdum svæðum,

3. að hefðbundum vopnum verði stöðugt fækkað hlutfallslega,

4. að ríki heims geri gagnkvæma samninga um að ráðast ekki hver á önnur, og

5. að ríkisstjórnir hafni því að beita stríði sem leið til að skera úr deilumálum  .. ennfremur að  hafna öllu ofbeldi hvernig sem það birtist.

 Margir vildu hjálpa til með því að skrá stuðningsaðila, láta boð út ganga, taka þátt í námskeiði um tilveru án ofbeldis og vera á póstlista.

Á morgun verður kynning í Kringlunni frá kl. 16.00 til 18.00