Nokkrir stuðnings aðilar.
Sameinuð með ljósið í hjartanu að vopni,
getum við spornað við öllum heimsins óþverra.
Hvert örstutt spor, sem við stígum saman,
verður risastórt skref.
Virkjum allar heimsins hendur saman,
því á meðan gjöra þær ekkert ljótt.“
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Söngvari
Maðurinn á alla æfi í baráttu við andstæð öfl í brjósti sínu. Þrátt fyrir mistök er mikilvægt að viðleitnin til hins góða, fagra og sanna sé sífellt virk í sálum okkar.
Á þann hátt tekst okkur þrátt fyrir allt að láta marga drauma okkar rætast.
Gunnar Kvaran sellóleikari og
prófessor við Listaháskóla Íslands
Ég styð Heimsgönguna vegna þess að friðarhugsjónir þarf að rækta ogstyðja í verki, alltaf - allsstaðar.
Andri Snær Magnason,
Rithöfundur
Vinir Tíbets fagna því að heimsbyggðin eigi þess kost að einbeita sér að friðarmálum. Friðargangan sameinar mannkynið í málefni sem er mikilvægara öllum öðrum. Þessi heimsgönguskref eru mikilvægur áfangi í átt að aukinni meðvitund um þörf okkar og djúpstæðri löngun að búa í heimi án ofbeldis og sundrungar. Allir þrá að upplifa hamingju - friður er forsenda hamingju. Vinir Tíbets á Íslandi styðja heimsgönguna heilshugar.
Hans heilagleiki metur mikils
frumkvæði samtaka ykkar.
Því er honum ánægja að lýsa yfir stuðningi
við þessa Göngu sem hefst 2. október 2009
og stendur til 2. janúar 2010 með ákalli
um að binda endi á allt ofbeldi
og eyða kjarnavopnum.
Dalai Lama
Ég styð þessa frábæru hugmynd af öllu hjarta. Þetta er verkefni með stórt
hjarta sem snertir alla, stuðlar að því að efla samkennd, kærleika og að
sameina enn betur íbúana sem búa allir saman í einu bæjarfélagi sem
heitir jörðin. Allt sem eflir og eykur skilning, kærleika, frið og vináttu
skiptir máli og skilar græðlingi í ört stækkandi kærleiksskóg.
Júlíus Júlíusson

Kramhúsið styður heimsgönguna af heilum hug.
Þetta er metnaðarfullt verkefni sem gefur okkur
tækfæri til að sýna vilja okkar í verki.
Kveðja starfsfólk Kramhússins.
Við göngum öll á sömu jörð. En hvort sem menn ganga á grárri steypu,um grænar grundir eða á grýttri jörð, þá þurfum við umfram allt að
huga að því að lífsgangan verði til góðs. Við styðjum þetta framtak
því það er til góðs. Áfram veginn til aukins friðar! Ekki veitir af.
Sálin
Fyrirhuguð HEIMSGANGA er stórkostlegt tækifæri til að sameina alla friðelskandi menn og konur allra kynþátta og af öllum meiðum trúarbraðga og stjórnmálaskoðanna, um hið göfuga markmiðið; AÐ SKAPA VERÖLD FRIÐAR með því að útrýma styrjöldum og hverskonar ofbeldi. Jóhann G Jóhannsson
Tónlistarmaður
Heilshugar styð ég þetta frábæra framtak.
Ef að sem flestir sameinast að því að vinna að friði
og kærleika þá stuðlum við að bættum heimi.
Við eigum það inni hjá okkur sjálfum
og er það ekki fyrst og fremst það
sem við óskum fyrir afkomendurna?
Greta Guðnadóttir,
fiðluleikari
Ég styð þetta góða málefni af heilum og hug og hér fyrir neðan fylgja nokkur orð frá mér.
Heimsganga "Já takk"
Ég styð þetta góða málefni af heilum hug því ég óska börnum mínum og
barnabörnum svo og annarra að lifa í heimi friðar og kærleika í framtíðinni.
Helga Möller
söngkona
"Hlaup.is styður Heimsgönguna af heilum hug, því beiting ofbeldis á aldrei rétt á sér.
Hvert einasta skref sem tekið er í átt að friðsömum heimi skiptir máli."
Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis er verkefni semég styð af öllu hjarta. Heimur án ofbeldis væri svo mikið betri heimur.
Við skulim brosa og eyða meiri orku í að vera góð við hvort annað :)
Stuðnings kveðjur og stórt knús frá Nýja Sjálandi
xoxHera
Ég styð verkefni sem ætlað er að stuðla að friði og samkennd fólks.
Það á að vera markmið okkar allra að tryggja stöðugleika,
réttlæti og frið. Afkomendur okkar
eiga rétt á þeirri hugsun og slíkri framkvæmd.
Halldór Halldórsson
Bæjarstjóri á Ísafirði
Friður er vilji. Við viljum frið. Við viljum afvopnun.
Við viljum sjá öll kjarnorkuvopn eyðilögð.
Við viljum að framleiðsla efnavopna verði bönnuð og komið í veg fyrir hvers kyns sýklahernað.
Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna
Lesa meira...
„þetta er gríðarlega flott og spennandi verkefni.
það þarf að minna okkur reglulega á mennskuna
og mikilvægi friðar til að við öll,
börn og fullorðnir, getum fengið að blómstra.“
Felix Bergsson leikari
Ég styð heimsfriðargöngu heilshugar.
Tilgangur minn er meðal annars að leggja mitt af mörkum til þess að gera heiminn að betri stað til að lifa á ásamt því að skapa fordæmi.
Elín Sigurðardóttir
Rope Yoga Meistarakennari
Ég styð þetta frábæra framtak af öllu hjarta, það er kominn tími
til að við tökum höndum saman.
Og göngum ekki aðeins til sigurs heldur til friðar í heiminum!
Sigrún Eðvaldsdóttir
Fiðluleikari
"Takmark Heimsgöngunnar er að fordæma hið stórhættulega ástand íheiminum, sem færir okkur nær og nær kjarnorkustríði og skapa í
staðinn kringumstæður sem leitt geta til friðar og tilvistar án
ofbeldis" Ég er stuðningsaðili nákvæmlega vegna þessa.
Kjartan Guðjónsson,
Leikari
Virðing fyri röllu lífi, jafnrétti og mannleg reisn eru þau gildi sem SGI á Íslandi setur í öndvegi. Við lítum svo á að það ætti að vera sjáflsögð réttindi hvers einstaklings að alast upp í friðsömu samfélagi án ofbeldis. Ofbeldi í hvaða mynd sem það birtist er ósigur mannsandans, það er niðurbrot á öllu því sem gerir okkur mannleg. Þess vegna styðjum við heimsgönguna í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.Soka Gakkai International á Íslandi
„Samtök Hernaðarandstæðinga styðja "Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru ánofbeldis" því markmið hennar er að vekja athygli á hinu hættulega ástandi í
heiminum, sem færir okkur sífellt nær kjarnorkustríði sem yrðu mestu
hörmungar Mannkynssögunnar. Þótt meirihluti mannkyns sé andvígur
vopnakapphlaupinu, lætur hann stjórnast af valdamiklum minnihluta. Því
þurfum við að styrkja sameiginlegt ákall friðarsinna um endi allra stríða.“
SAMFÉS styður heilshugar Heimsgöngu til friðar. Hafi einhverntímann verið
tími til að standa saman með friði þá er það í dag. SAMFÉS mun að sjálfsögðu
taka þátt í Heimsgöngunni.
Lesa meira...
Réttlæti er forsenda fyrir friði. Réttlæti mun ekki ná fram að ganga nema að fólk sameinist um að útrýma spillingu, græðgi og öðrum aðstæðum sem leiða til stríðsátaka.
Heimsgangan er að mínu mati mikilvægur þáttur í slíku ferli.
Ég ætla því að taka þátt og hvet alla til að gera það!
Lilja Mósesdóttir
Hagfræðingur
Ég styð heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis. Þetta er stórkostlegt framtak og færir okkur vonandi skrefinu nær takmarkinu um
betri heim.
Rúnar Óskarsson

Geti ég eitthvað gert til að börn heimsins búi við aukið öryggi
og frið og forðað einhverjum frá þeim manngerðu hörmungum sem styrjaldir eru,
geri ég það með gleði. Allt hefur áhrif; við getum öll lagt af mörkum!
Margrét Pála Ólafsdóttir
framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar
Á hverjum einasta degi koma börn jafnt sem fullorðnir saman, í öllum löndum heims, til að leika knattspyrnu. Fólk á öllum aldri, af báðum kynjum, af öllum stærðum og gerðum, öllum kynþáttum, úr öllum trúflokkum og af öllu þjóðerni, sameinast í þessari fallegu íþrótt. Ástin á knattspyrnu sameinar heimsbyggðina og er öflugt tæki til ákalls um frið á vorum tímum og til allrar framtíðar.
Þess vegna styður Knattspyrnusamband Íslands Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis, af heilum hug og hjarta.
KSÍ - Alltaf í boltanum
Umboðsmaður barna styður Heimsgönguna enda er það grundvallarréttur barna að lifa og þroskast samanber 6. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ofbeldi og stríð leiðaniðulega til þess að börn verða fyrir varanlegum skaða og ná hvorki að lifa eða þroskast eðlilega. Sýnum samstöðu og verndum börnin okkar hvar sem þau eru í heiminum. Þau eru framtíðin.Umboðsmaður Barna
Við styðjum þetta fallega framtak og hvetjum alla til að taka þátt íheimsfriðargöngunni með Bros á vör, því ef við smælum framan í heiminn þá
smælar heimurinn framan í okkur!
Hildur og Rakel Hara-systur
Að búa við jöfnuð, í samfélagi jafnaðarmennsku, er að búa við frið. Ef jöfnuður ríkir milli manna, milli kynjanna, milli stétta, milli kynþátta, milli landa, þá ríkir friður. Það hlýtur að vera hugsjón okkar allra. Göngum í átt til friðar.Kolfinna Baldvinsdóttir
LLM í alþjóðalögum
Mér finnst þetta verkefni
vera alveg stórkostleg hugmynd
og ég styð hana heilshugar.
Í henni er fólgin kærleikur til mannkynsins.
Verk sem unnin eru í kærleika
færa okkur alltaf nær settum markmiðum
Þórhildur Líndal
lögfræðingur
og f.v. umboðsmaður barna á Íslandi
Þetta verkefni styð ég allshugar.
Við eigum svo margt betra skilið.
Komdu fram við þann,
eins og þú villt að hann komi fram við þig.
Búi Baldvinsson
Leikstjóri.

Nú hef ég litið á þetta verkefni og eftir að hafa
kynnt mér fyrirliggjandi gögn
vil ég taka heilshugar þátt í því.
Ómar Ragnarsson
Auðvitað lýsi ég stuðningi við Heimsgönguna! Hvernig er hægt að styðja ekki Heimsgönguna? Vilja ekki allir friðsælan heim án ofbeldis? Þarf eitthvað að efast um það? Auðvitað ekki.
Þorvaldur Þorsteinsson
myndlistamaður og rithöfundur
Ég dáist að fólki sem er tilbúið til að ekki bara vilja frið, ekki bara tala um frið ogláta sig dreyma um frið heldur stendur upp og gerir eitthvað í málunum, er til í að nota
dýrmætan tíma sinn og orku í að vinna í því sem við öll viljum að verði. Friður kemur
ekki af sjálfu sér. Það þarf að vinna þrotlaust að því að sameina andann, kynna fólki
öðruvísi menningu til að minnka hræðslu við hið óþekkta.
Ég vil gjarnan hjálpa.
Hildigunnur Rúnarsdóttir
Tónskáld
Friðurinn innra með okkur og í sálum okkar er sá friður sem getur magnast og breiðst út um heiminn, ef hann finnur réttan farveg.. Okkur mönnunum hefur ekki tekist sem skyldi að halda frið á jörðu, þrátt fyrir öll heimsins trúarbrögð,sem því miður oftar en ekki hafa orðið ófriðnum valdandi.
Guðný Guðmundsóttir fiðluleikari og
konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Ný lífssjón styður af alhug hugsjónir heimsgöngunnar
og óskar mannkyni öllu heim án ofbeldis og fordóma.
Samtök fólks sem vantar á útlimi
og aðstandenda þeirra
Ég styð Heimsgönguna í þágu friðar og fagna þessu framtaki. Það er mikilvægt að gera eitthvað sem
allir geta tekið þátt í og tengir fólk landa og heimsálfa milli.
Einar Ólafsson, bókavörður og rithöfundur
SEEDS styður heimsgönguna og mun á virkan hátt taka þátt í undirbúningi og framkvæmd á hinu mannlega friðarmerki 2. október. SEEDS vill þannig vinna að friði á jörð og gagnkvæmum skilningi manna á milli
Allt sem við veitum athygli vex og dafnar. Það er mikilvægt að við vöndum okkur og veljum að veita frið, ást og kærleik athygli en ekki ófrið og eymd. Fyrst verðum við að taka ábyrð á því að hremmingar heimsins byrja og enda í hugum okkar og ef við eigum að hafa áhrif á heiminn með því að vera fordæmi, verðum við að byrja á okkur , vakna til vitundar, opna hjörtu okkar og vera sjálf friðurinn sem við viljum. Ég styð heimsgönguna í vitund, af öllu hjarta.Guðni Gunnarsson,
lífsráðgjafi
Ófriður sökkar'Bjarni Frímann Bjarnason, músíkant
Ég styð heimsgönguna í þágu friðar af heilum hug, af því að ég er skotin í Viggo Mortensen og svo er ég auðvitað friðarsinni einsog Gandi, Lennon og Yoko Ono.Jóhanna V. Þórhallsdóttir
kórstjóri
„Ef friður kæmist á í heiminum þá gætustjórnvöld um allan heim einbeitt sér að
því að bæta lífsgæði ALLRA þeirra sem
minna mega sín! "Vegna þess að við getum
bundið enda á hungrið í heiminum með
einungis 10% af því sem eytt er í vopn" þetta er
ástæðan fyrir því að við styðjum Heimsgöngu í þágu
friðar og tilveru án ofbeldis af heilum hug.“
Samband íslenskra framhaldsskólanema.

Ég vil taka þátt í heimsfriðargöngunni,
því heimurinn þarf að útrýma
öllum birtingarmyndum ofbeldis,
hvort sem þær eru líkamlegar,
andlegar eða efnahagslegar.
Árni Sigfússon
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar
'Hugmyndin um Heimsgönguna er sérstaklega mikilvæg í ljósi þess ástands,sem ríkir í heiminum í dag.
Ég vonast til að þessi kraftmikla aðgerð, sem virkjar svo mikinn
fjölda fólks út um allan heim, hjálpi til við að snúa því til betri vegar.
Þessi Heimsgönguaðgerð gefur okkur öllum aukinn styrk og trú á að
endurnýjun og uppbyggingarferlið sé nú þegar byrjað'
Ewa Tosik, tónlistarkona
Íþróttafélagið þór á Akureyri lýsti formlega yfir stuðningi sínum við Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis, á Pollamóti Þórs og Icelandair sem fram fór dagana 4.- 5. Júlí. Af því tilefni dró Sigfús Helgason formaður Þórs, félagsfána þórs ásamt fána Heimsgöngunnar að húni.
Við félagarnir í Spaugstofunni höfum ætíð reynt að horfa á björtu hliðar
mannlífsins og fögnum þessarri heimsgöngu í þágu friðar. Það að styðja við
bakið á þeim sem vilja betri heim án yfirgangs og stríðsreksturs í öllu
formi, hlýtur að vera hið besta mál,.
Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis...
já takk!...
Spaugstofan
...Þar sem allsnægtirnar eru annars vegar
er eymdin sjaldan mjög fjarri.
Á hverjum morgni
allt árið um kring birtast fréttir í blöðunum...
Bryndís Schram
Lesa meira...
Ofbeldi leiðir alltaf af sér meira ofbeldi
og slæmt karma.
Við getum sjálf breytt okkar eigin framtíð
og okkar karma.
Hver einstaklingur er ábyrgur fyrir því
að standa gegn ofbeldi
í hvaða mynd sem það birtist...
Árni Pétur Guðjónsson
Leikari
Það er með stolti og mikilli á-nægju og ekki bara nægju, heldur einnig gleði, sem ég styð ,,Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis". Þetta stókostlega átak hugaðs fólks um alla jörð sem vill láta gott af sér leiða og breyta því hugarfari sem við virðumst föst í.
Margrét Vilhjálmsdóttir
Leikkona
Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS-ICYE Iceland) styðja Heimsgönguna af heilum
hug. Heimsgangan er okkar leið - leiðin til að stuðla að friði milli
einstaklinga og þjóða með því að kynnast ólíkum menningarheimum.
Sabine Leskopf
Framkvæmdastjóri/ Director

