Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.
Heimsganga - Sigling elstubarnanna með Húna II

Heimsganga - Sigling elstubarnanna með Húna II

Laugardaginn 29. ágúst fóru elstu börnin í leiksólanum í Friðarsiglingu með Húna II. Markmið ferðarinnar var að senda út flöskuskeyti sem þau höfðu útbúið. Þessi sigling var í tenglum við Heimsgöngu, í þágu friðar og tilveru án ofbeldis. Gangan sjálf hefst á fæðingardegi Gandhis, 2. október 2009 á Nýja Sjálandi, stendur yfir í 3 mánuði og endar við rætur Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameriku 2. jan 2010.

Einnig fara fram mismunandi aðgerðir í hverju landi fyrir sig allt árið 2009: Fyrirlestrar, listsköpun,tónleikar,friðargöngur... eins mikið og margt og ímyndunaraflið og framkvæmdagleðin leyfir. Takmark Heimsgöngunnar er að fordæma hið stórhættulega ástand í heiminum, sem færir okkur nær og nær kjarnorkustríði og skapa í staðinn kringumstæður sem leitt geta til friðar og tilvistar án ofbeldis. Til að það geti gerst þarf að skapa vitund á heimsvísu gegn ofbeldi eins og gerst hefur í umhverfismálum. Að fólk verði almennt meðvitað um þörfina á að fordæma allar tegundir ofbeldis og komi á raunverulegum friði -  hjá sjálfu sér, í nánasta umhverfi, í þjóðfélaginu..í heiminum..

Hægt er að lesa nánar um Heimsgönguna á heimsganga.is

Skemmtileg aðkoma, fullt af frábærum bönum sem bíða spennt.

Allir fengu björgunarvesti

Svo ar eins gott að klæða sig vel, það er kalt á sjónum

Svo var farið um borð.

Fáninn blaktir

Mikil spenna

Skipstjórinn í brúnni

Svo var lagt í hann

Flöskurnar fínu á leiðinni í sjóinn. Hver hópur sendi sína flösku af stað.

Kát börn og brosandi foreldrar leggja að eftir góða ferð

Svo skrifuðu allir í gestabókina

 

Ef einhverjir foreldrar eiga myndir frá flöskukastinu sjálfu væri það vel þegið í safnið þar sem skólastjórinn varð eftir á bryggjunni ;)