Þriðjudaginn 6. október sameinuðumst við börn og kennarar á Akri í
friðargöngu í kringum fallega skólann okkar. Eftir gönguna mynduðum við
friðarhring á skólalóðinni og sungum saman ,,Myndin hennar Lísu" um leið
og við nutum þess að senda okkar friðsælu, kærleiksríku orku út í
samfélagið.

