Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

 

Ávarp Rafael Correa forseta Evador til stuðnings Heimsgöngunni í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.

Þjóðir heiams, Ekvadorbúar:

Því er lýst yfir í stjórnarskrá Ekvadors að friður ríki á yfirráðasvæði landsins og að erlent herlið megi ekki koma sér fyrir innan landamæra þess. Ekvadorher var stofnaður með lýðræðislegar meginreglur í huga og það að markmiði að vernda réttindi borgaranna, frelsi þeirra og öryggi ásamt því að verja réttmætt fullveldi ríkis og lýðveldis.

Þess vegna styð ég af óskorðaðri sannfæringu og í nafni þjóðar Ekvadors og ríkisstjórnar minnar kröfu milljóna manna, óháð uppruna, þjóðerni, tungumáli, trúarbrögðum, menningu, aldri eða kynferði um frið. Við deilum öll sömu hugmyndum og löngun um frið í heiminum og höfum gripið til þess að láta til okkar heyra og sýna orð okkar í verki með Heimsgöngunni í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.

Þessi viðburður er einstakur í sögunni. Húmanistahreyfingin stendur fyrir göngu um heim allan í þeim tilgangi að fara fram á það við valdamenn heims að þeir standi fyrir kjarnorkuafvopnun jarðar og fordæmi smíði og notkun gereyðingarvopna, að herlið séu umsvifalaust dregin burt frá hverju því erlenda landi sem þau dveljast í gegn vilja heimamanna. Krafist er áframhaldandi og stigvaxandi niðurskurðar hefðbundinna vopna, staðfestingar gagnkvæmra samninga um að hefja ekki stríðsrekstur og að ríkisstjórnir hafni valdbeitingu eða hótunum um valdbeitingu til að leysa deilur. Hafnað er ofbeldi af öllu tagi, jafnframt því að stuðla að algildri vitund um mikilvægi friðar.

Ríkisstjórn mín er á sama máli og aðrar þjóðir Rómönsku Ameríku og styður þessa tillögu sem er nátengd hinum eftirminnilega grundvallarsamningi kenndum við Tlatelolco. Þar var samþykkt fyrir rúmum fjórum áratugum að gera álfuna fyrsta kjarnorkuvopnalausa heimshlutann. Friðarstefnan er köllun og við erum sannfærð að mikilvægi friðar sé algilt. Þess vegna höfum við hrint af stað róttæku ferli í átt til breytinga undir merki friðar.

Þessi bylting borgaranna hefur þróast með umfjöllun og virkri þátttöku þar sem ekki hefur verið gripið til neinna aðgerða sem fela í sér ofbeldi. Fólk getur sungið af fögnuði og án ótta um sigra sína og vonir.

Bæði þjóð mín og ríkisstjórn hefur sett sér það markmið að útrýma staðfastlega öllu ofbeldi af landssvæðum Ekvadors. Stjórnvöld þar sýndu mikla grimmd á myrkum tímum nýfrjálshyggjunnar þar sem borgurunum var stefnt hverjum gegn öðrum og blóðið flaut bæði í borgum og sveitum.

Vitað er að ofbeldi af ýmsu tagi á rót sína að rekja til siðspilltra forréttindakerfa sem hunsa grundvallarmannréttindi mannkyns og borgara en fórna öllum gildum á ódrengilegu altari markaðarins. Við gerum okkur líka grein fyrir því að markmið friðar, frelsis og lögmætis nást því aðeins að öll áhersla sé lögð á réttlæti og gagnkvæma virðingu. Rómanska Ameríka býr við hvað mest misrétti allra jarðarbúa. Þetta ástand verður að breytast því nú verður mannskynssagan að taka tillit til hinna fátæku Ameríkubúa.

Þessu verður ekki mótmælt og heldur ekki ákvörðun okkar um að berjast án afláts fyrir þessu markmiði. Þess vegna munu bæði Ekvadorbúar og ríkisstjórn mín þann 18. desember fagna Heimsgöngufólki opnum örmum í hjarta Quito-borgar við Plaza Grande torgið kæra þar sem mikilsverðir atburðir í sögu lands okkar hafa átt sér stað. Þannig lýsum við því yfir við umheim allan að við tökum þátt í göngunni allt fram í janúar 2010 þegar þessari einstöku pílagrímsför lýkur í Punta de Vacas í systurlýðræðisríki okkar, Argentínu.

Þetta borgaralega fyrirmyndarframtak - með einróma stuðningi fólks um heim allan -endurspeglast í mikilfenglegri heimsgöngu og endurómar gamalt en þó viðeigandi kvæði eftir Rafael Alberti sem hljómar svo í lauslegri þýðingu:

„Ég hrópa það nú: Friður! Og ég hrópa það,
hrópið fyllir kinnar þínar.
Friður, á fótum! Friður! Friður, á hnjánum!
Friður fram að lokum hins óendanlega!

Ekkert annað orð, engin önnur áhersla
eða annað titrar milli handa,
aðeins friður!  Friður, bróðir!
Ást og friður er næringin eina.”

Félagar, höldum saman uns sigur næst!

Rafael Correa,

Forseti Ekvador

 

Myndskeið Ræðunnar

 

 

www.heimsganga.is

www.theworldmarch.org