Fundur MFÍK um friðaruppeldi
Mánudaginn 16.nóv. var haldinn góður fundur á vegum Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK í Friðarhúsinu þar sem rætt var um mikilvægi friðsamlegra samskipta og friðaruppeldi.
Samveran hófst með léttri máltíð. Margrét Guðmundsdóttir lagði út frá orðinu FRIÐUR og las ljóð.
María S. Gunnarsdóttir sagði frá tildrögum fundar, vinnu MFÍK að friðaruppeldi í gegnum tíðina og að á 9.áratugnum hefði töluverð umræða verið um friðarfræðslu hér á landi. Nokkrar þingsályktunartillögur voru lagðar fram á Alþingi um málið en efnið reyndist mjög eldfimt og engin niðurstaða náðist.
Síðan hófust umræður með aðferð sem kölluð hefur verið heimskaffihús. Þátttakendur skiptust í hópa við lítil borð. Byrjuðu á svokölluðu heimaborði en færðu sig svo, öll nema einn af hverju borði, út í heim til að kynnast öðrum viðhorfum og umræðu á öðrum borðum.
Er hægt að ala upp ofbeldislausa kynslóð? Hvernig ölum við upp fordómalaus börn? Getur friðaruppeldi þjálfað börn í að leita ofbeldislausra lausna? - voru útgangspunktar í byrjun.
Að umræðum loknum gáfu hóparnir svolitla skýrslu og urðu í framhaldi af því ágætar umræður. Þar kom m.a. fram að Sameinuðu þjóðinar hafi lýst áratuginn 2000-2010 áratug friðarfræðslu og vooru viðstaddir sammála um að það hefði farið hljótt hér á landi. Þá sögðu húmanistar nýkomnir frá Berlín frá árlegum fundi Nóbelfriðarhafa.
Þáttakendur sem voru m.a. MFÍK-félagar, Húmansistar og félagar í Friðarhreyfingu búddista skráðu sig á póstlista og er ætlunin að áframhald verði í þessa veru. Áhugasamir geta skráð sig á póstlistann með því að senda tölvupóst til
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Lokaorð fundar voru tilvitnun í Margaret Mead: "Við skulum aldrei efast um að lítill hópur hugsandi fólks geti breytt heiminum. Það er í raun og veru það eina sem nokkurn tímann hefur gert það."

