Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

                            Tilgangur Heimsgöngunnar 

Aðalmarkmið Heimsgöngunnar er að skapa vitundarvakningu um allan heim, eins og gerst hefur í umhverfismálum. Að fólk verði almennt meðvitað um þörfina á að fordæma allar tegundir ofbeldis og koma á raunverulegum friði.
Fyrir tuttugu árum var fólk almennt séð ekki svo meðvitað um umhverfisvernd, en í dag efast enginn um mikilvægi þess að vernda náttúruna, andrúmsloftið og höfin.
Í dag er það algert grundvallaratriði að fólk verði meðvitað um að það sé lífsnauðsyn að útrýma ofbeldi í víðum skilningi. Að það fari að taka eftir hvernig það birtist í hinum ýmsu myndum, komast að rótum þess og vinna bug á því.
Með því að skoða, vekja athygli á og ræða um við aðra hvernig ofbeldið hefur laumast og smeygt sér inní í daglega lífið okkar, venjur og samskipti og lýsa yfir vilja sínum til að breyta því, er aðgerð í sjálfu sér.  Það eitt gefur ákveðna viðmiðun og stefnu.  Þetta er m.a. það sem átt er við þegar við tölum um að vekja fólk til vitundar.
Ræðið einfaldlega um þetta við aðra, vini og kunningja, fjölskyldumeðlimi, inni í hópum sem þið tilheyrið hvar og hvenær sem tækifæri gefst. Þetta er áskorun sem felur í sér miðlun upplýsinga og það að aðrir fari að hugsa um þessi mál á sama hátt.

                              Hvað get ég gert ?

Í svona herferð þurfum við allskonar kynningarefni - margar hendur vinna létt verk ☺ og hér eru nokkrar hugmyndir um verkefni fyrir alla sem vilja leggja hönd á plóg:
Þú gætir t.d:
Efni:
  • Ljósritað dreifimiða, upplýsingapésa, prentað bæklinga
  • Útbúið eða fjölfaldað CD - diska með kynningarefni,
  • Prentað eða málað fána og borða (helling af litlum og einhverja stærri) með slagorðum Heimsgöngunnar
  • Útbúið hvaðeina sem gæti vakið athygli á Heimsgöngunni – límmiða, plaköt, áprentaða boli, bolla, penna o.s.frv.
  • Útbreiðsla:
  • Komið upplýsingum á framfæri við fjölmiðla, s.s. útvarpsrásirnar, sjónvarpið, dagblöðin, tímarit,
  • Ef þið þekkið vel fjölmiðlafólk, gætuð þið ''útvegað'' viðtöl í útvarpsþáttum, (t.d. Ferðalag með Möggu Maack o.fl.) sjónvarpsþáttum, ( Kastljós,  Mosaik,  etc.)
  • Skrifað greinar í blöð, tímarit, landsbyggðarblöðin, skólablöð, fagtímarit og á sumum vinnustöðum eru gefin út fréttablöð sem hægt væri að setja klausur í.
  • Hengt upp plaköt hvar sem þú getur því viðkomið, í skólum, verslunum etc.
  • Verið með stuttar kynningar, í skólanum þínum, á vinnustaðnum, biðröðinni í búðinni, strætó, matsalnum,  eða hvar sem sem þér dettur í hug  í þínu umhverfi.
  • Hægt væri að fá eitthvert símafyrirtækið til að senda út SMS öðru hverju til að hnippa i menn :) eða jafnvel senda út smá orðsendingar með símreikningunum, eða Orkuveituna með sínum reikningum ☺
  • Fá íslenska framleiðendur til að setja slagorð og minna á Heimsgönguna á einhverjar af sínum vörum,
  • Fá þá sem eru með stóru auglýsingaskiltin til að auglýsa Heimsgönguna á skiltunum – það væri t.d. frábært framlag, Auglýsingar á Strætóskýlum eða á Strætó myndu líka vekja athygli á Heimsgöngunni, svo ef einhver er í tengslum við aðila sem hafa með þessa hluti  að gera......Einhverjir gætu viljað merkja bílana sína, eða láta útbúa límmiða, sem setja mætti inná afturrúðuna ..... Svona mætti lengi telja –  aðalatriðið er að möguleikarnir eru óteljandi – allir geta tekið þátt í verkefninu og nú er tækifærið til að láta sköpunarkraftinn blómstra sem aldrei fyrr !
Eigið frumkvæði:
  •  Gangan sjálf er skýr og mikilvæg viðmiðun sem bakgrunnur Heimsgönguaðgerðarinnar, en sjálft hjarta alls verkefnisins slær í allri þeirri sköpun sem mun fara fram hjá fjölda fólks, sem mun taka þátt í alls kyns aðgerðum, eða skapar sínar eigin – að vera með hvers kyns uppákomur, ss. myndlistarsýningar, tónleika, semja friðarljóð og eða lög og flytja t.d. á kaffihúsum, (t.d. prjónakaffi með friðarljóðaívafi), eða stærri tónleikar, gönguhópar  og  hjólaklúbbar,sem ganga og hjóla í þágu friðar, ljósmyndasamkeppnir/sýningar smáar og stórar, video-stuttmyndir....... hugmyndirnar og verkefnin eru óþrjótandi. Við setjum svo tilkynningar á heimasíðuna okkar um verkefnin og uppákomurnar fyrir þá sem vilja.
Stöndum saman að þessu dásamlega verkefni sem Heimsgangan er - og um leið og við sköpum nýtt Ísland, þá er gott að hafa frið í fyrirúmi og leyfa okkur sjálfum og öðrum að njóta allrar þeirrar sköpunar sem í okkur býr. !