Friður er vilji. Við viljum frið. Við viljum afvopnun.
Við viljum sjá öll kjarnorkuvopn eyðilögð.
Við viljum að framleiðsla efnavopna verði bönnuð og komið í veg fyrir hvers kyns sýklahernað.
Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna
Gífurlegum fjármunum er varið til vígbúnaðar meðan stór hluti mannkyns sveltur. Til eru næg vopn í heiminum til að útrýma öllu mannkyni en samt er hergagnaframleiðslu haldið áfram. Vísindamenn nota hugvit sitt til að fullkomna vopn sem geta eytt öllu lífi. Við verðum að taka höndum saman gegn þessari ógn og vinna markvisst að því að komandi kynslóðir fái að byggja jörðina í friði. Samtakamáttur fólks getur gert gæfumuninn.
Friður er samkomulag.
Friður er kjarni Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK, elstu starfandi friðarhreyfingar á Íslandi.
Menningar- og friðarsamtökin MFÍK taka þátt í Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.

