Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

Það er með stolti og mikilli á-nægju og ekki bara nægju, heldur einnig gleði, sem ég styð ,,Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis". Þetta stókostlega átak hugaðs fólks um alla jörð sem vill láta gott af sér leiða og breyta því hugarfari sem við virðumst föst í.
Margrét Vilhjálmsdóttir
Leikkona

 

 

 

Það er með stolti og mikilli á-nægju og ekki bara nægju, heldur einnig gleði, sem ég styð ,,Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis". Þetta stókostlega átak hugaðs fólks um alla jörð sem vill láta gott af sér leiða og breyta því hugarfari sem við virðumst föst í.
Dags daglega gerum við okkur ekki alltaf grein fyrir mikilvægi þess að búa við tilveru án ofbeldis, en hér á Íslandi höfum við verið svo heppin að þurfa ekki að ganga í gegnum hörmungar stríðs þó ýmislegt gangi á í íslenskum veruleika.
Þá er einnig til mismunandi ofbeldi s.s. heimilisofbeldi og ofbeldi gagnvart konum og börnum er enn mikið, bæði í vestrænum löndum sem og annars staðar. Einnig verða samfélög og einstaklingar fyrir valdníðslu stjórnvalda og yfirboðara.
Getum við hugsað okkur heim án stríðs og ofbeldis ? Já og þvílík forréttindi sem því fylgdi.
Göngum óhrædd í þágu friðar !

Margrét Vilhjálmsdóttir Leikkona