Friðurinn innra með okkur og í sálum okkar er sá friður sem getur magnast og breiðst út um heiminn, ef hann finnur réttan farveg.. Okkur mönnunum hefur ekki tekist sem skyldi að halda frið á jörðu, þrátt fyrir öll heimsins trúarbrögð,sem því miður oftar en ekki hafa orðið ófriðnum valdandi.
Guðný Guðmundsóttir fiðluleikari og
konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis er sýnilegt átak, sýnilegt allri heimsbyggðinni og einstakur farvegur friðarins. Ég styð þetta átak heils hugar og dáist að þeim sem áttu hugmyndina og öllum þeim fjölda manns sem mun taka þátt og standa fyrir framkvæmdun. Það er ósk mín og von að átakið muni hafa víðtak áhrif á heiminn , að eftir því verði rækilega tekið.
Gangan er neyðaróp gagnvart þeim ömurlegu viðhorfum að réttlætanlegt sé að framleiða hin hryllilegustu drápstæki og murka lífið úr heilum þjóðum í þágu óútskýranlegra málefna, sem menn hafa verið heilaþvegnir til að trúa á.
Megi hún ganga til góðs.
Guðný Guðmundsóttir fiðluleikari og
konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands