“Heimsgangan” er risavaxin aðgerð sem fer fram á heimsvísu.
Gangan sjálf hefst á fæðingardegi Gandhis, 2. október 2009 á Nýja Sjálandi, stendur yfir í 3 mánuði og endar við rætur Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameriku 2. jan 2010.
Einnig fara fram mismunandi aðgerðir í hverju landi fyrir sig allt árið 2009:
Fyrirlestrar, listsköpun,tónleikar,friðargöngur... eins mikið og margt og ímyndunaraflið og framkvæmdagleðin leyfir.
Takmark Heimsgöngunnar er að fordæma hið stórhættulega ástand í heiminum, sem færir okkur nær og nær kjarnorkustríði og skapa í staðinn kringumstæður sem leitt geta til friðar og tilvistar án ofbeldis.
Til að það geti gerst þarf að skapa vitund á heimsvísu gegn ofbeldi eins og gerst hefur í umhverfismálum. Að fólk verði almennt meðvitað um þörfina á að fordæma allar tegundir ofbeldis og komi á raunverulegum friði - hjá sjálfu sér, í nánasta umhverfi, í þjóðfélaginu..í heiminum..
Við stefnum að því að sem flestir Íslendingar taki virkan þátt í þessari mikilvægu aðgerð á árinu 2009.
Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis
Til að það megi heyrast þegar milljónir friðelskandi manna kalla eftir því, að bundinn verði endir á stríð og allt ofbeldi.
Þetta verður í fyrsta sinn sem gengið er umhverfis jörðina til að hvetja til þess að bundinn verði endir á stríð, að kjarnavopnum verði eytt og öllu ofbeldi, hvernig sem það birtist, verði útrýmt.
Tilgangur göngunnar er að:
Ná fram útrýmingu kjarnavopna; hlutfallslegri og stöðugt meiri fækkun annarra vopna; undirritun samninga milli þjóða um að ráðast ekki gegn öðrum; og að ríkisstjórnir hafni stríði sem aðferð til að leysa ágreining.Viðurkenna og hefja til vegs og virðingar bestu eiginleika ólíkra menningarsamfélaga og þjóða jarðarinnar.
Sameina vilja fólks allsstaðar til að binda endi á þá plágu sem stríð eru.
Skapa alþjóðlega, félagslega vitund sem fordæmir allt ofbeldi hvernig sem það birtist (líkamlegt, sálrænt, byggt á kynþætti, trúarbrögðum, efnahagslegt, kynferðislegt), sem er svo útbreitt og viðurkennt í þjóðfélögum hvarvetna.
Alþjóðleg vitund sem fordæmir allt ofbeldi.
Heimsgangan í tölum:
Heimsálfur: 6
Lönd: 90
Vegalengd: 160.000 kílómetrar
Tímalengd: 90 dagar
Flutningar: 40 lestarferðir (þ.m.t. Síberíuhraðlestin), 100 ferðir á landi (fjórhjóladrif, langferðabifreið, bifreið, mótorhjól, reiðhjól o.s.frv.) þ.m.t. leiðirnar frá París til Dakar og frá Norður- til Suður-Ameríku um Andes fjallgarðinn, 14 flugferðir, 25 ferðir á sjó (skip, prammar, barkarbátar o.s.frv.)
Loftslag:
Gangan mun fara um allar tegundir loftslags, frá mildu og tempruðu – fara um Miðjarðarhafsloftslag, meginlands- og hitabeltissvæði – til heimskautasvæða. Frá túndrum Síberíu til eyðimerkur Sahara og Atacama eyðimerkurinnar (sú þurrasta í heimi) til Suðurheimskautsins.
Árstíðir:
Á 90 dögum mun gangan fara tvisvar um allar fjórar árstíðirnar.
Hæð yfir sjávarmáli:
Á meðan á göngunni stendur mun hún komast í 5000 metra yfir sjávarmál.
Kjarnahópur:
50 manns.
Það verður farið 160 sinnum yfir landamæri.
Stofnanir sem standa að göngunni: 500
Stofnanir sem styðja og verða í samstarfi: 3000
Heimsóknir til ríkisstjórna og pólitískra fulltrúa: 100
Andlegar miðstöðvar: 25
Þátttakendur í ferðinni: 1 milljón
Þátttakendur (Sýndarheimur netsins) 10 milljónir
Ameríka:
Argentína, Bólivía, Brasilía, Kanada, Chile, Kólumbía, Kostaríka, Dóminíska lýðveldið, Ekvador, El Salvador, Gvatemala, Haítí, Hondúras, Mexikó, Níkaragva, Panama, Paragvæ, Perú, Bandaríki Norður-Ameríku, Venesúela.
Suðurskautslandið:
Evrópa:
Austurríki, Belgía, Bosnía og Hersegóvína, Hvíta-Rússland, Króatía, Tékkland, Danmörk, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Gíbraltar, Grikkland, Holland, Ungverjaland, Ísland, Ítalía, Lúxemborg, Pólland, Portúgal, Rússneska ríkjasambandið, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tyrkland, Bretland.
Afríka:
Alsír, Benín, Búrkína Fasó, Egyptaland, Gambía, Gana, Gínea-Bissá, Gínea-Konakry, Fílabeinsströndin, Malí, Máritanía, Marokkó, Mósambík, Senegal, Tógó, Vestur-Sahara.
Meginland Asíu:
Bangladess, Kína, Indland, Ísrael, Mongólía, Nepal, Norður-Kórea, Pakistan, Rússneska ríkjasambandið, Suður-Kórea, Tyrkland.
Kyrrahafssvæðið og Austur-Asía:
Ástralía, Japan, Nýja-Sjáland, Papúa-Nýja Gínea, Filippseyjar.
Hvers vegna?
Vegna þess að við getum bundið enda á hungrið í heiminum með einungis 10% af því sem eytt er í vopn. Ímyndaðu þér hvernig lífið yrði ef 30-50% af hernaðarútgjöldum færu til að bæta líf fólks í stað þess að nota það til að eyðileggja.Vegna þess að með því að útrýma stríði og ofbeldi segjum við skilið við forsögu mannsins og tökum risastórt skref fram á við í þróun tegundar okkar.
Vegna þess að okkur fylgja raddir þeirra fjölmörgu stríðshrjáðu kynslóða sem gengu á undan okkur. Bergmál radda þeirra heyrist enn um allan heim, þar sem stríðsátök skilja eftir sig hörmuleg ummerki látinna, týndra, örkumla og hrakinna.
Vegna þess að „heimur án stríðs“ er hugsýn sem opnar okkur framtíð og leitast við að verða að veruleika í öllum heimshornum, þegar ofbeldið hörfar fyrir samræðum.
Nú er runnin upp sú stund þegar rödd þeirra sem enga rödd eiga mun heyrast! Vegna sárrar og brýnnar þarfar hrópa milljónir mannvera eftir að bundinn verði endir á stríð og ofbeldi.
Við getum komið þessu í kring með því að sameina alla krafta friðarstefnu og virkrar baráttu án ofbeldis um allan heim.
Hvenær?
Heimsgangan mun hefjast á Nýja-Sjálandi 2. október 2009, á fæðingardegi Gandhis. Sameinuðu þjóðirnar hafa tilnefnt þann dag sem „Alþjóðlegan dag tilveru án ofbeldis“. Henni mun ljúka í Andesfjöllum (Punta de Vacas, Aconcagua, Argentínu) þann 2. janúar 2010.Gangan mun standa yfir í 90 daga, þrjá langa mánuði á ferð. Hún mun fara í gegnum allar árstíðir og mismunandi loftslag, allt frá heitu sumri hitabeltisins og eyðimarka til vetrarins í Síberíu.
Hverjir taka þátt?
Göngunni er komið af stað af samtökunum „Heimur án stríðs“ sem eru alþjóðleg og hafa starfað í 15 ár að friðarmálum og andófi gegn ofbeldi.
Heimsgangan verður hins vegar byggð upp og þróuð af öllum. Hún verður opin öllum manneskjum, samtökum, samstarfsaðilum, hópum, pólitískum flokkum og fyrirtækjum, sem deila sömu þrá og næmni. Þetta verkefni útilokar engan. Þvert á móti er þetta framtak sem mun eflast jafnt og þétt eftir því sem margvíslegt frumkvæði kemur til sögunnar.
Þannig er þetta opið boð til allra um frjálsa þátttöku. Fólk getur þannig hvert á sínum stað lagt göngunni lið með sinni sköpunargleði í stórkostlegri samlegð fjölbreyttra aðgerða.
Það er rúm fyrir allt sem ímyndunaraflið er fært um að skapa.
Leiðir til þátttöku eru margvíslegar og fjölbreyttar, meðal annars að taka þátt í göngunni í sýndarheimi internetsins.
Þetta er ganga með fólki og fyrir fólk og vonir standa til þess að hún nái til flestra íbúa heimsins. Af þessum ástæðum biðjum við alla fjölmiðla að láta boð út ganga um þetta ferðalag kringum heiminn í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.
Hvað mun gerast?
Í sérhverri borg sem gangan heimsækir munu íbúar staðarins og ýmsir hópar skipuleggja málþing, fundi, ráðstefnur og atburði (t.d. menningarlega og á sviði tónlistar og annarra listforma sem og menntunar) allt eftir eigin skapandi framtaki.Nú þegar hafa ýmsir einstaklingar og samtök hrundið af stað ótal verkefnum.
Hvert er takmark okkar?
Að fordæma hið hættulega ástand í heiminum, ástand sem færir okkur nær og nær kjarnorkustríði sem yrði mestu ófarir mannlegrar sögu – blindgata.Að vera rödd meirihluta borgara heimsins sem vilja frið. Jafnvel þótt meirihluti mannkyns sé á móti vopnakapphlaupinu sendum við ekki frá okkur sameiginleg skilaboð. Þess í stað látum við stjórnast af valdamiklum minnihluta og það veldur okkur þjáningum. Það er kominn tími til þess að við stöndum saman og sýnum andstöðu okkar.
Gakktu í lið með fjölda annarra til þess að gefa skýrt merki og þá hlýtur rödd þín að heyrast!
Að ná fram takmarkinu um útrýmingu kjarnavopna; hlutfallslega og stöðugt meiri fækkun annarra vopna; undirritun samninga þjóða í milli um að hverfa frá árásarstefnu; og höfnun ríkisstjórna á stríði sem aðferð til að leysa ágreining.
Að draga fram í dagsljósið margar aðrar birtingarmyndir ofbeldis (menningarlegt, kynþáttalegt, kynbundið, trúarlegt...) sem í dag eru huldar og dulbúnar af ofbeldisöflunum; og láta öllum þeim sem þjást af slíku ofbeldi í té vettvang til þess að láta í sér heyra.
Að skapa vitund á heimsvísu, eins og gerst hefur í umhverfismálum, um hina knýjandi þörf á að fordæma allar tegundir ofbeldis og koma á raunverulegum friði.
Skipulagt af: Heimur án stríðs
og án ofbeldis
Alþjóðleg samhæfing: Rafael de la Rubia
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.marchamundial.org

