Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS-ICYE Iceland) styðja Heimsgönguna af heilum
hug. Heimsgangan er okkar leið - leiðin til að stuðla að friði milli
einstaklinga og þjóða með því að kynnast ólíkum menningarheimum.
Sabine Leskopf
Framkvæmdastjóri/ Director

Við vinnum með ungu fólki bæði af íslenskum og erlendum uppruna sem fer í
sjálfboðastörf út um allan heim til að upplifa ólíka menningarheima. Okkar
þátttaka í Heimsgöngunni verður að leyfa þessum boðberum friðarins að sleppa
ljóskerum með áletrun "Friður" í mörgum tungumálum upp í himinninn til að
senda skilaboðin áfram.
Upphaf ICYE er að rekja til ársins 1949 þegar ungmennaskipti hófust milli
Þýskalands og Bandaríkjanna í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar. Markmiðið
var að græða sár vegna styrjaldarinnar og stuðla að friði milli þjóðanna.
Alþjóðleg Ungmennaskipti (AUS) voru stofnuð árið 1961 og hafa starfað
óslitið síðan. Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun samtakanna hafa meira
en 1000 sjálfboðaliðar farið út á okkar vegum og annar eins fjöldi komið
hingað til lands.
Með kveðju / Best regards,
Sabine Leskopf
Framkvæmdastjóri/ Director