Regnbogabörn eru fjöldasamtök gegn einelti. Einelti er líkamlegt og andlegt ofbeldi sem skaðar varanlega þá einstaklinga sem verða fyrir því. Það er okkur þvi sérstök ánægja að lýsa yfir stuðningi við þetta ágæta verkefni. Regnbogabörn hafa á undanförnum árum unnið að forvarna og fræðslustarfi í skólum og víðar með fyrirlestrahaldi, námskeiðum, sjálfstyrkingu, útgáfu fræðsluefnis og annars sem mætti verða til
þess að halda umræðunni um eiineldi vakandi í samfélaginu og vera
sífellt að benda á þetta samfélagsmein og hvetja stjórnvöld og
almenning til að taka þátt í því að uppræta það.
Heimsgangan er að mínum dómi kjörinn vettvangur til að benda á það
sem betur mætti fara í samfélagi manna og hjálpa fólki til að koma
auga á þann fjársjóð sem felst í mannauði heimsins þar sem flestir
eiga miklu meira sameiginlegt en það sem greinir okkur frá.
Fyrir hönd Regnbogabarna lýsi ég yfir stuðningi samtakanna við þetta
verkefni og munum við gera það sem í okkar valdi stendur að gera til
að þetta verkefni auðgi tilveruna sem allra mest.

